Stiklur - Góðar fréttir


Velkomin á heimasíðu Aglow í Garðabæ.
                                         
Aglow er alþjóðleg samtök kristinna kvenna, ein fjölmennasta hreyfing kvenna í heiminum í dag. Lifandi tengslanet sem boðar fagnaðarerindið um Jesú Krist - Alþjóðlegt bænanet - Kærleiksnet sem vill láta gott af sér leiða fyrir samfélagið og þjóðum til blessunar. Aglow í Garðabæ er hluti af Aglow á Íslandi sjá  Aglow.is
_____________________________________________________________

Sumargleði - Sumarbros

Aglowkvöld fimmtudaginn 10. maí kl.20.00

" Konurnar sem sigur boða flytja gleðifréttir "

   

Hallelúja.
Lofið Guð í helgidómi hans, lofið hann í voldugri festingu hans.
Lofið hann fyrir máttarverk hans, lofið hann vegna mikillar hátignar hans.
Lofið hann með lúðurhljómi, lofið hann með hörpu og gígju.
Lofið hann með bumbum og gleðidansi, lofið hann með flautum og strengjaleik.

Léttar veitingar, lofgjörð og tilbeiðsla, fyrirbæn og yfirflæði frá himninum. Við hlökkum til að hitta ykkur allar stúlkur mínar. Allar konur hjartanlega velkomnar.

_________________

AGLOW í Hafnarfjörð - Nýr hópur

Góðar fréttir, Aglowhópur er að hefja göngu sína á Völlunum í Hafnarfirði. Fyrsti fundur er á fimmtudagskvöldið 26. apríl kl. 20.00.

Fyrsti fundur á vegum Aglow verður verður haldinn í safnaðarrými Ástjarnarkirkju yfir rjúkandi kaffi og meðlæti. Edda Swan, formaður Landsstjórnar Aglow á Íslandi, kynnir Aglow starfið. Helena Leifsdóttir, formaður Aglow hópsins í Garðabæ, leiðir söng. Fríða, tengiliður Aglow starfsins á Völlunum, ræðir hugmyndina að baki stofnun hópsins. Aglow fundirnir eru opnir öllum konum, án nokkurra skuldbindinga.
Allar konur eru velkomnar að kíkja í kaffi.

                                                        _________________________

Davíð er gangandi kraftaverk og lifandi dæmi þess hvað bænin er öflug.

Þann 1. nóvember í vetur varð hann fyrir slysi þegar hann datt niður af húsþaki af þriðju hæð, þar sem hann var við vinnu, og lenti á stétt. Þegar komið var með Davíð á bráðamóttöku komu fljótt í ljós miklar innvortis blæðingar og áverkar eins og fram kemur í frásögn Auðar: "Ósæðin og fleiri æðar höfðu farið í sundur og náðu læknar að stöðva þær blæðingar sama kvöld. Mjaðmargrindin var illa brotin á mörgum stöðum og átti hann að fara í aðgerð vegna hennar nokkrum dögum síðar þar sem læknar treystu honum ekki í hana fyrr. Á skurðarborðinu hætti hann að anda þar sem annað lungað féll saman og blæddi inn á hitt....lestu um kraftaverk Guðs!

Styrktartónleikar fyrir Ísfirðinginn Davíð A. Höskuldsson málarameistara verða haldnir í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu fimmtudaginn 3. maí kl. 20. Fram koma Gospelkór Fíladelfíu undir stjórn Óskars Einars, Edgar Smári, Gugga Lísa, Íris Lind Verudóttir og hljómsveitin 1860.

___________________________

  MP3 Upptökur frá Aglow fundunum.
  Viltu hlusta á prédikun, kennslu eða vitnisburð? 

Nýtt - Nýtt hjá okkur hér í AGLOW. Núna getur þú hlustað á upptöku MP3 frá Aglowfundunum.
Við höfum ákveðið að nýta tækni internetsins og taka upp á diktafone vitnisburði, ræður og kennslu frá Aglow fundunum okkar. Njóttu þess að hlusta á Aglowfund heima í stofu. Smelltu á " Upptökur MP3" og hlustaðu á konurnar sem sigurboða, flytja gleðifréttir.

____________________________

Konurnar sem sigur boða
flytja gleðifréttir!


Aglow kvöld fimmtudaginn
12. apríl kl. 20.00

Apríl fundurinn ber yfirskriftina " Konurnar sem sigur boða flytja gleðifréttir " Margar konur munu stíga í pontu og vitna um trú sína og traust á Guði. Það verður spennandi og heyra sögur úr hversdagslífinu, bænasvör og lækningar. Jesús sagði; Ég er með þér alla daga!Bæn og lofgjörð, söngur og tilbeiðsla. Að vanda verður gott með kaffinu og létt og notalegt spjall við kaffiborðið.  Aðgangseyrir kr. 700 ( Húsaleiga)
Kæra vinkona, þú ert hjartanlega velkomin á AGLOW, taktu með þér vinkonu þína það mun gleðja hana að kynnast Aglowstarfinu.

 
   
   

_______________________




Aglowkonur fóru í Bænagöngu í Stykkishólmi 2011




Bænaganga 19. apríl - Sumardagurinn fyrsti
Bæn fyrir landi og þjóð.


Á Sumardaginn fyrsta, 19. apríl verður gengið og beðið á ýmsum stöðum á landinu. Hver gönguhópur fær sitt bænarefni, þannig umvefjum við landið og þjóðina í bæn. Á liðnum árum höfum við fengið að sjá mörg bænasvör. Hér er verið að knýja á í bæn fyrir stóru málunum í þjóðfélaginu okkar. Sýnum styrk okkar í bæninni og samstöðu með kristnum einstaklingum um land allt. Nánari upplýsingar á lindin.is





            
 Páskahugleiðing.

Halldóra Ásgeirsdóttir, Aglowkona er dugleg að blogga á mbl.is. tæplega 60.000 manns hafa lesið bloggið hennar. Dóra færir lesendum mbl. uppbyggilegt orð og hvatningu frá Orði Guðs. doralara.blog.is




______________________________

5 ára afmælishátíð.

Við héldum upp á 5 ára afmæli starfsins 11. nóvember sl. og var það reglulega skemmtilegt kvöld. Margt var um manninn; mikið hlegið og sungið Guði til dýrðar. Stúlkurnar í stjórninni; Ásta Lóa, Gunna og Signý Gyða tóku allar til máls og Helena stjórnaði fundinum. Edda Swan flutti Orð kvöldsins. 5 ára afmæli er ekki langur tími á okkar mælikvarða en margt hefur áunnist og erum við þakklátar Guði fyrir allar okkar frábæru konur sem fylla salinn mánaðarlega, taka þátt í bæna og leshópum og elska Aglow starfið. Við erum núna að hefja sjötta starfsárið, með frábærum konum. Myndir frá afmæliskvöldinu...skoða myndir

________________________________

Janúar 2012 Orð frá formanni

Ég óska þér Guðs blessunar og náðar á nýju ári 2012. Ég þakka þér innilega fyrir allar samverustundirnar á liðnu ári, hjálpina og trúfesti þína við Aglow starfið. Guð er dásamlegur Guð umhyggja hans er óendanleg og við getum hvílt öruggar í hendi hans á nýju ári. Fel Drottni verkin þín og fjölskyldu og hann mun hugsa vel um þig.

Árið 2011 kvaddi okkur prúðmannlega og landsmenn fögnuðu nýju ári að venju með mikilli flugeldasýningu, erlendum ferðamönnum til mikillar ánægju. Ég fór út á hól og blés í Shofar hornið mitt og bað fyrir þjóðinni minni og guðsríki á Íslandi. Ég sjálf vænti mikilla hluta, framgangs og sigurs á öllum vígstöðvum. Vertu með mér og okkur í eftirvæntingu fyrir nýju ári 2012.


5 ára afmæli - Markar nýtt upphaf

Afmælisfundurinn fundurinn í nóv. sl. var sá fjölmennasti sem við höfum séð til þessa, nærvera Drottins yndisleg og komu margar konur fram til fyrirbæna. Haust starfið var að mörgu leiti vísir að nýju upphafi. Ferskir vindar blása um akrana sem er mjög hvetjandi.

Guð hefur sjálfur sagt: Ég mun ekki sleppa af þér hendinni né yfirgefa þig. Því getum við öruggar sagt: Drottinn er minn hjálpari ég mun ekki óttast". (Heb.13,5) Við göngum inn í nýtt ár með eftirvæntingu!

Hlutverk okkar ...
Við erum kallaðar til að færa gleði og endurlausn himinsins niður til jarðarinnar. Þjóð sem býr við myrkur og vonleysi þarf að heyra um ást Guðs, gæsku hans og umhyggju. Færum fólkinu okkar nýja VON. Færum himininn niður til jarðarinnar. Verum konur sem umbreytum og umbyltum íklæddar kærleika Guðs. Gleðin í Drottni er hlífiskjöldur okkar.

2012 -  Talan 12
Talan 12 er merkileg tala, hún er tala stjórnunnar og tákn um guðleg áhrif.
Jane H. Hoyt skrifar á blogginu sínu: Árið 2012 Snýst um að guðleg stjórnun muni aukast.
Ef við viljum sjá guðlega stjórnun aukast á jörðinni verðum við fyrst að leyfa henni að vaxa í okkur sjálfum, hans fólki á dýpri hátt.

 _______________________

Faðirvorið og börnin

Hvað er slæmt við það að börnin okkar fari með bænir? Spyr Bubbi Morteins í pistli sínum á pressunni. Hann heldur áfram og skrifar...Bænahald skerpir hugann og kallar fram það góða í hjarta okkar. Það er fólk sem trúir ekki, fínt mál. Það eru til önnur trúarbrögð en kristni og auðvitað á að sýna umburðarlyndi í trúmálum. Það er því miður ekki svo úti í hinum stóra heimi þar sem fólk drepur hvort annað vegna trúar. Engu að síður tel ég að trú geti kallað fram það fegursta í manneskjunni...lesa hér

 




__________________
Aglow í Garðabæ

Afmælishátíð



Hallelúja.
Syngið Drottni nýjan söng,
lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúfastra.
Sálmur 149:1
.................

Rödd okkar mun hljóma!


Rakel Gyða Pálsdóttir


Á fimmtudagskvöldið verður glatt á hjalla, fyrsti fundur vetrarins hefst stundvíslega kl.20.00 Framundan er spennandi vetrarstarf með Aglow konum, konunum sem Sigur boða og fara fram sem sterkur her. Ein af uppáhalds ungu stúlkunum okkar Rakel Gyða er á förum til USA, hún mun hefja nám við Biblíuskóla í lok september. Rakel ætlar að tala til okkar. Einnig ætla stjórnarkonur að leggja inn Orð fyrir veturinn: Signý Gyða, Guðrún og Ásta Lóa.

Léttar veitingar, lofgjörð og tilbeiðsla, fyrirbæn og yfirflæði frá himninum. Við hlökkum til að hitta ykkur allar stúlkur mínar. Allar konur hjartanlega velkomnar.


_______________________




Heidi Baker á Íslandi
helgina 20.-21. ágúst

Laugardag kl. 19.00
Sunnudag kl. 14.00 og 19.00

Fjölbraut í Garðabæ



 

Heidi og Rolland Baker eru stofnendur Iris Ministris, sem starfar nú í yfir 35 löndum. Þau eru þekkt fyrir stórkostlega trúboðssmurningu og þjónustu sína til fátækra og munaðarlausra víða um heim. Þau standa fyrir vakningu og hafa stofnað yfir 10.000 kirkjur í Mosambique og barnaheimili fyrir þúsundir barna.

Það er mikill heiður að fá Heidi Baker til Íslands og munu allir snertast af þeim mikla kærleika Guðs sem hún ber.

Heidi er hrífandi sögumaður. Hún talar um presta sem hafa verið reistir upp frá dauðum, hún segir sögur af fólki sem hefur fengið sjón og heyrn, óteljandi frásögur af kraftaverkum, lækningum, fólki sem kemst til trúar, upplifir Jesú á stórkostlegan hátt. Hún segir líka sögur af hrikalegum árásum á starfið. Börn deyja, kristniboðar hafa dáið, við höfum verið barin og okkur varpað í fangelsi og verið grýtt, verið einmanna og hrædd.

Það er afar sannfærandi að hlusta á Heidi, ekki vegna þess hversu fáguð hún sé, því það er hún ekki, heldur vegna þess hversu raunveruleg hún er. Heidi geislar af gleði og kærleika Guðs. Megin boðskapur hennar er; Að gefa sig algjörlega Guði, hvatning hennar er; Auðmýktu þig, tæmdu sjálfa þig og hlustaðu á rödd Föðurins, gefðu þig á vald Heilags anda og segðu í barnslegri einlægni, ég get ekkert í eigin mætti. Það er ekki nóg að gefast Guði bara einu sinni. - Við þurfum að gefast Guði á hverjum degi. Það er mikill heiður fyrir okkur hér á Íslandi að fá Heidi í heimsókn og er það einlæg bæn okkar að sem flestir komi í FG til að hlusta og upplifa. Heidi Baker kemur til Íslands á vegum kirkjunnar " Himinn á jörðu" 

Blessunarkveðjur
Helena

Viðtal við Roland Baker og Heidi  má lesa í Bjarma

Bloggið þeirra og heimasíða

 

http://www.irismin.org/home